Upplýsingar um hleðslutæki
Tækið er ætlað til notkunar þegar það er hlaðið með eftirfarandi hleðslutækjum: AC-3, AC-11 . Númer hleðslutækisins getur
verið mismunandi eftir klónni sem er notuð og auðkennd er með E, X, AR, U, A, C, K eða B.
Viðvörun:
Aðeins skal nota hleðslutæki sem Nokia hefur samþykkt til notkunar með þessari tilteknu gerð. Ef notaðar eru aðrar gerðir gæti
öll ábyrgð og samþykki fallið niður og slíkri notkun getur fylgt hætta. Notkun ósamþykktra hleðslutækja getur valdið eldhættu,
sprengingu eða haft aðra áhættu í för með sér.
Þegar hleðslutæki er tekið úr sambandi skal taka í klóna, ekki leiðsluna.